Sendiherra
Gerard Pokruszyński
Sérstakur sendiherra og fulltrúi Lýðveldisins Póllands á Lýðveldinu Íslandi
Gerard Pokruszyński hefur starfað hjá Utanríkisráðuneyti Lýðveldisins Póllands frá því árið 1991.
Áður var hann staðsettur í Mílanó (1993-1999), Málmey (2004-2007) og Catania (2007-2009) sem starfandi aðalræðismaður Lýðveldisins Póllands. Hann starfaði einnig sem ráðgjafi í Fastanefnd Lýðveldisins Póllands við Efnahags- og Framfarastofnunina í París (2001-2002) ásamt því að starfa sem ráðunautur pólitískra málefna Sendiráðs Lýðveldis Póllands í Kænugarði.
Hann starfaði sem forstöðumaður skrifstofu ráðherra í Utanríkisráðuneytinu (2015-2017), forstöðumaður Austurlandsdeildar (2017). Áður var hann forstöðumaður kynningadeildar (1999-2000) og forstöðumaður utanríkisdeildar í Forsætisráðuneytinu árið 2000.
Hann útskrifaðist frá Félagsfræðideild Háskólans í Varsjá og tók framhaldsnám í Evrópufræðisetri háskólans og utanríkisþjónustunám í Háskólanum í Flórens. Hann er með doktorsgráðu í varnarmála - og hertækni frá Þjóðvarnarháskólanum í Varsjá.
Gerard Pokruszyński hefur verið embættismaður Lýðveldisins Póllands frá því árið 2000. Hann er giftur og talar ensku, ítölsku, sænsku og rússnesku.